Gerum lífið betra í samfélaginu okkar

D-listinn
Sjálfstæðismenn og óháðir í Vogum

Kosningaskrifstofa opnar innan skamms

Skrifstofan verður staðsett í Þorbirni (Hafnargötu 10)


Næstu viðburðir

Fimmtudaginn 12. feb 20:00: Stefnukaffi og spjall

 

Í stefnu okkar leggjum við mikla áherslu á ábyrga fjármálastjórnun, umhverfis og skipulagsmál auk almennar uppbyggingu í bæjarfélaginu til góðs fyrir fólkið okkar. D-listi Sjálfstæðismanna og óháðra er nú að bjóða sig fram í bæjarstjórn í sveitarfélaginu Vogum í þriðja sinn. Á þessu kjörtímabili höfum við setið í minnihluta með tvo bæjarfulltrúa en þó náð að koma inn hluta af okkar stefnumálum. Lækkun fasteignagjalda og aukið lóðaframboð hefur verið meðal áherslumála hjá okkar framboði undanfarin ár. Þrátt fyrir að hafa starfað í minnihluta höfum við verið virk í að koma okkar tillögum á framfæri og má t.d. nefna að ærslabelgur við íþróttamiðstöð og aparóla sem sett verður upp í sumar eru okkar tillögur. Auk þess höfum við beitt okkur fyrir því að reglugerð hefur verið sett um stöðuleyfi gáma. Við munum halda áfram á þeirri braut og hafa umhverfi okkar að leiðarljósi.

Við hvetjum þig, kjósandi góður til að kynna þér vandlega fyrir hvað við stöndum og í framhaldi af því að gera upp hug þinn um hvort þú treystir okkur til þeirra ábyrgðarstarfa. Við treystum okkur til að sinna þeim fyrir þig. Við heitum þér að vinna að öflugri uppbyggingu sveitarfélagsins. Hér viljum við ala upp börnin okkar eyða ævikvöldinu og njóta þeirra forréttinda sem það er að búa í Vogum og á Vatnsleysuströnd.