D-listinn
Sjálfstæðismenn og óháðir í Vogum
Opnunartími kosningaskrifstofu
Virkir dagar: 19:30 til 22:00
Helgar: 14:00 til 18:00
Skrifstofan er staðsett í Sjávarborg 1C (Grænuborgarhverfinu)
Always use kuumba to reach the people
Næstu viðburðir
Föstudaginn 8. maí 20:00: Viskíkynning og spjall (Sjávarborg 1C)
Laugadagurinn 9. maí 12:00: Kjötsúpa fyrir eldri borgara (Sjávarborg 1C)
Sunday 10. may 17:00: International residents meeting (Sjávarborg 1C)
Mánudaginn 11. maí 20:00: Opinn málefnafundur (Sjávarborg 1C)
Þriðjudaginn 12. maí 20:00: Opinn málefnafundur (Sjávarborg 1C)
Fimmtudaginn 14. maí 15:00: Fjölskyldugrill D listans (Sjávarborg 1C)
Föstudagurinn 15. maí 20:00: Pöbbkviss kvöld (Sjávarborg 1C)
Laugardagurinn 16. maí 10:00: Bröns og spjall (Sjávarborg 1C)
Laugardagurinn 16. maí 21:00: Kosningavaka (Sjávarborg 1C)
D-listi Sjálfstæðismanna og óháðra í Vogum býður nú fram í fjórða sinn til bæjarstjórnar í sveitarfélaginu Vogum.
Við leggjum áherslu á ábyrga og skynsamlega fjármálastjórn, áframhaldandi uppbyggingu sveitarfélagsins og vandaða þróun í sátt við umhverfi og samfélag. Vogar eru gott og vaxandi samfélag með einstakan bæjarbrag, en tækifærin sem fylgja þeirri uppbyggingu þarf að nýta af ábyrgð, festu og framsýni.
Áherslur okkar byggja á því að styrkja grunnstoðir samfélagsins, efla þjónustu og innviði og skapa aukin tækifæri fyrir alla íbúa. Við viljum að Vogar verði áfram fjölskylduvænt, öruggt og lifandi samfélag þar sem börn, ungmenni, fjölskyldur og eldri borgarar fái notið sín.
Við viljum efla atvinnuuppbyggingu í sveitarfélaginu og greiða leið fyrir bæði sprotafyrirtæki og stærri fyrirtæki til að festa rætur hér. Með aukinni atvinnu skapast fleiri tækifæri, sterkari innviðir, fjölbreyttari þjónusta og öflugra bæjarlíf.
Frístunda-, íþrótta- og menningarmál skipta okkur miklu máli. Við viljum fjölga tækifærum fyrir börn og ungmenni, efla félagslíf, styðja við íþróttastarf og skapa lifandi menningarsamfélag fyrir alla aldurshópa. Samfélagið á að vera gott, skemmtilegt og hvetjandi til að búa í.
Við leggjum einnig ríka áherslu á fallegt nærumhverfi, bætta ásýnd sveitarfélagsins, vistvænt skipulag, skógrækt, fjölgun áningarstaða og betra aðgengi að náttúruperlum og minjum í Vogum og á Vatnsleysuströnd. Umhverfi okkar er ein helsta auðlind sveitarfélagsins og það ber að nýta og vernda af skynsemi.
D-listinn vill halda áfram að byggja Voga upp á traustum grunni, með ábyrgum rekstri, skýrri framtíðarsýn og virku samtali við íbúa. Við trúum því að krafturinn búi í fólkinu sjálfu og að með samvinnu, sátt og framsýni getum við gert gott samfélag enn betra.
Við hvetjum þig, kjósandi góður, til að kynna þér fólkið okkar, áherslur okkar og þá sýn sem við höfum fyrir framtíð sveitarfélagsins. Við erum tilbúin að taka ábyrgð, vinna af heilindum og leggja okkar af mörkum til að Vogar og Vatnsleysuströnd haldi áfram að vaxa sem sterkt, fjölskylduvænt og framsækið samfélag til framtíðar.
Okkar leið
Voga appið
Tengir saman kerfi sveitarfélagsins eikur sjálfvirkni og fækkar handtökum
Vogamódelið
Vogamódelið er nálgun D-listans í leikskólamálum. 30 klst gjaldfrjáls grunnþjónusta
Voganeistinn
Framtakssjóður sem eflir fólk með kraft, frumkvæði og vilja

