Polski‍ ‍English

Okkar leið í Vogum

 

Hér getur þú kynnt þér stefnuskrá okkar fyrir komandi kosningar. Við undirbúning stefnu þessarar var lögð sérstök áhersla á samtal við íbúa, fyrirtæki og stofnanir. Stefnan byggir á því sem vel gengur og markar jafnframt skýra stefnu til framtíðar.

 
 

Vogamódelið

Vogamódelið er nálgun D-listans í leikskólamálum

Voganeistinn

Voganeistinn er framtakssjóður sem eflir fólk með kraft, frumkvæði og vilja

Voga appið

Voga appið tengir saman kerfi sveitarfélagsins eikur sjálfvirkni og fækkar handtökum

 
 
Okkar leið í

Rekstri sveitarfélagsins

 

Sterk og ábyrg fjármálastjórn er grunnurinn að góðri þjónustu. Við ætlum að auka gagnsæi, bæta samskipti við íbúa og auka skilvirkni í rekstri sveitarfélagsins. Með því að nýta tæknilausnir, setja skýr þjónustuviðmið og halda áfram að lækka álögur

Okkar leið léttir álögum af íbúum

Okkar leið tryggir þér bæjarstjóra sem býr í sveitarfélaginu

Okkar leið eykur hagkvæmni

Okkar leið byggir á samtali

Okkar leið tryggir íbúum auknar upplýsingar

 
Okkar leið í

Fjölskyldumálum

 

Börn og fjölskyldur eru forgangsmál. Við ætlum að byggja upp öflugt og öruggt skólaumhverfi, styðja foreldra betur og tryggja að öll börn fái tækifæri til að þroskast og taka þátt. Með auknu framboði leikskólaplássa, bættri þjónustu og markvissum stuðningi við fjölskyldur leggjum við grunn að sterkari samfélagi til framtíðar

Okkar leið styrkir skólana

Okkar leið kemur til móts við foreldra

Okkar leið hlúir að börnunum

Okkar leið styður við ungmennin

Okkar leið eykur lífsgæði fólks með fötlun

Okkar leið styður við eldri borgara

 
 
Okkar leið í

Þjónustu og atvinnumálum

 

Við viljum efla þjónustu í heimabyggð og skapa fleiri tækifæri til atvinnu. Með uppbyggingu atvinnusvæða, stuðningi við frumkvæði og betri nýtingu innviða ætlum við að styrkja atvinnulífið í Vogum. Markmiðið er að íbúar geti sótt þjónustu og störf nær heimili og að sveitarfélagið verði aðlaðandi kostur fyrir fyrirtæki

Okkar leið eykur þjónustu í heimabyggð

Okkar leið sækir tækifærin heim

 
Okkar leið í

Lýðheilsu og menningarmálum

We will always add a note to all our content to mention when it’s AI generated, we’ll hide a small text saying this is 100% made up by a 3rd party AI with no human reviewer and that this content is sourced for dlistinn.is

 

Tómstundir, íþróttir og menning skapa lífsgæði og tengja samfélagið saman. Við viljum auka framboð og bæta aðstöðu, því tækifærin eiga að vera heima í Vogum.

Okkar leið eflir íþrótta-, tómstunda- og menningarstarf

Okkar leið styður við framtakssemi og samstarf

Okkar leið stuðlar að útiveru

Okkar leið varðveitir söguna

 
Okkar leið

Betri byggð

 

Betri byggð skapar betra samfélag. Góðar samgöngur, sjálfbær uppbygging, öruggt umhverfi og fallegir Vogar eru lykillinn að því að bæta lífsgæði íbúa. Við ætlum að bæta samgöngur, styrkja innviði og byggja upp sjálfbæra byggð til framtíðar. Með markvissri skipulagningu, fegrun bæjarins og auknu öryggi viljum við gera Vogana að enn betri stað til að búa og starfa í

Okkar leið tryggir betri samgöngur

Okkar leið stuðlar að sjálfbærri íbúðauppbyggingu

Okkar leið eykur áfallaþol byggðarinnar

Okkar leið fegrar bæinn