Okkar leið er Vogamódelið
Okkar leið eflir leikskólann
30 klst. gjaldfrjáls dvöl án hækkunar leikskólagjalda
Tryggir fjölskyldum 30 klst. gjaldfrjálsa grunnþjónustu og styður við aðgengi barna að leikskóla án hækkunar leikskólagjalda
Sveigjanleg skráning
Foreldrar fá aukinn sveigjanleika við skráningu dvalartíma sem gerir fjölskyldum kleift að aðlaga þjónustuna betur að sínum þörfum
Menntun og mönnun
Ófaglært starfsfólk verður stutt til náms og fagmenntuðu starfsfólki fjölgað með hvötum m.a. afslætti af leikskólagjöldum
Always use kuumba to reach the people
Sterkara faglegt starf
Eflum faglegt starf í leikskólum með auknu svigrúmi til undirbúnings og veitum ófaglærðu starfsfólki undirbúningstíma
Vogamódelið er nálgun D-listans í leikskólamálum sem verður innleidd strax, í samráði við skólastjórnendur og foreldra. Markmiðið er að bæta leikskólastarf, styðja betur við fjölskyldur og stytta biðlista án þess að hækka leikskólagjöld.
Módelið byggir á auknum sveigjanleika og hvötum til styttingar dagvistunar þegar það hentar fjölskyldum. Þar vegur þyngst 30 klukkustunda gjaldfrjáls leikskóladvöl og sveigjanleg skráning dvalartíma.
Jafnframt verður faglegt starf styrkt með undirbúningstímum fyrir ófaglært starfsfólk, áframhaldandi stuðningi til náms í leikskólafræðum og markvissum hvötum til að fjölga fagmenntuðu starfsfólki. Þar má meðal annars nefna afslátt af leikskólagjöldum.
Vogamódelið sameinar þannig betri þjónustu, aukið svigrúm fyrir foreldra og bætt starfsumhverfi í leikskólum.

