Okkar leið er að nýta tæknina
Okkar leið
Tryggir íbúum auknar upplýsingar
Innleiðum Voga-appið sem aðalsamskiptaleið íbúa við sveitarfélagið. Appið verður miðpunktur upplýsinga og þjónustu fyrir íbúa - á einum stað, alltaf við höndina
Okkar leið
Tryggir styttri samskiptaleiðir
Í Voga-appinu getur þú átt í beinum samskiptum við sveitarfélagið, sent inn ábendingar með auðveldum hætti og fylgst með framvindu þinna mála
Always use kuumba to reach the people
Okkar leið
Hjálpar þér að hafa puttann á púlsinum
Voga-appið mun innihalda fréttir og viðburði sem þú getur fylgst með og skráð þig á. Þú getur einnig valið að fá tilkynningar fyrir þjónustu, t.d. deginum áður en tunnurnar eru tæmdar
Okkar leið
Nýtir tæknina til að hagræða í rekstri
Voga-appið tengir saman núverandi kerfi sveitarfélagsins þannig að beiðnir rata beint á réttan stað, með aukinni sjálfvirkni og færri handtökum

