Okkar leið er Voganeistinn
Í Vogum er mikið af fólki með kraft, frumkvæði og vilja til að gera meira fyrir samfélagið sitt. Fólk vill standa fyrir nýjum verkefnum, efla félagslíf, skapa ný tækifæri fyrir börn og ungmenni eða bæta menningar- og íþróttastarf í sveitarfélaginu. En of oft stoppa góðar hugmyndir áður en þær ná flugi.
Þess vegna leggjum við til að stofna framtakssjóðinn Voganeistann.
Í hverju felst það:
Styrkir til nýrra verkefna
Stuðningur við frumkvæði íbúa og félagasamtaka
Eykur fjölbreytni og þátttöku í samfélaginu
Voganeistinn er framtakssjóður í Vogum sem hefur það markmið að styðja við ný verkefni og hugmyndir á sviði frístunda, menningar og íþrótta. Með sjóðnum viljum við efla frumkvæði íbúa, skapa fleiri tækifæri til þátttöku og styrkja samfélagslífið í Vogum.
Sjóðurinn styður við verkefni einstaklinga, hópa og félagasamtaka sem vilja skapa jákvæð áhrif í samfélaginu. Voganeistinn á að vera vettvangur fyrir nýjar hugmyndir, samstarf og aukna fjölbreytni í samfélaginu.

