Vilt þú bæta samfélagið?
Vilt þú hafa áhrif?
Við auglýsum eftir framboðum fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.
Ertu einhver sem hefur hugmyndir um hvernig megi gera samfélagið okkar betra? Líst þér vel á að taka þátt í að móta framtíð sveitarfélagsins? Þá er þetta tækifærið þitt.
D listinn samanstendur af Sjálfstæðismönnum og óháðum einstaklingum sem deila sameiginlegri sýn: Sterkt, blómstrandi og vel rekið sveitarfélag þar sem ákvarðanir stuðla að valdeflandi samfélagi .
Við þurfum á þér að halda!
Hvort sem þú hefur reynslu úr atvinnulífi, menntakerfinu, heilbrigðisþjónustu, sveitarstjórnarmálum eða ert einfaldlega með brennandi áhuga á málefnum heimabyggðar – þá getur þú lagt þitt af mörkum.
Hjá okkur skiptir máli:
Frumkvæði og hugmyndaauðgi
Áhugi á þjónustu við íbúa
Vilji til að vinna í öflugu liði
Skráðu þig í dag og vertu hluti af framtíðinni